Bandarísk kvikmynd um ástina

Fyrir einhleypan karlmann nær fjórða tugnum, er ekki óeðlilegt að vilja slaka á eftir viðburðarlausan dag og horfa á rómantíska kvikmynd um ástir og örlög fólks í bandaríkjunum þar sem smjör og brundur drýpur af hverju strái. Myndin sem rataði í nýmóðins vídjósýningagræjur síðuhaldara er með gamla brýninu Dennis Quaid og freðýsunni Söru Jessicu Parker, sem af ótilgreindri ástæðu, – fer ægilega í taugarnar á mér.

Það er ákafalega nærandi fyrir sálarlífið að fylgjast með fólki sem ég sjálfur tengi umsvifalaust við, í þessu tilfelli gamlan prumpukarl sem prumpar og prumpar yfir þær persónur sem voru svo ólukkulegar að vera skrifaðar inn í sömu sögu og hann. Hann að sjálfsögðu er aðeins framan af leiðindardurgur og prumpukall, því eftir að vera búinn að prumpa og láta öllum illum látum í félagi við persónu Söru Jessicu Parker, nær Sara að bræða hann ofan í það mót sem hún getur fellt sig við.

Áður en allt fellur í ljúfa löð, kemur millikafli, þar sem gamli karldurgurinn neyðist til að horfast í augu við sjálfan sig. Það gerir hann að sjálfsögðu með hjálp áfengis, enda er öllum það ljóst að eina leiðin til að kafa ofan í drullupytt sálarinnar er kófdrukkinn. Það er líka svo krúttlegt.

Meðan hann áttar sig á hvernig tilveran virkar, hefur einhver amerískur fábjáni upp hása söngrödd sína og syngur viðurstyggilegt lag. Alltaf skal þessi ameríski söngvari vera hás eins og Bryan Adams. Og alltaf skal hann vera fenginn til að syngja í myndum um ameríska karlmenn sem átta sig á að þeir eru þumbar. Og alltaf skulu það vera karlmennirnir í þessum myndum sem þurfa á lexíu að halda, enda markhópurinn konur og konum líður vel með myndir þar sem karlmenn eru ömurlegir og konurnar réttvísar og skynsamar.

En ég er ekki búinn að klára að horfa á þessa mynd. Ó, nei. Ég get ekki beðið eftir að fá að vita hver örlög þessa fólks verður. Ég þori varla að segja það en ég vona að þau drepist öll. Það er þó lítil von til þess. Það er þó allar líkur á að ég gubbi í kjöltu mér.

5 thoughts on “Bandarísk kvikmynd um ástina”

  1. hví skerðu ekki bara í þig með bitlausum hníf eins og heilbrigt fólk gerir þegar því langar að þjást?

  2. Ég samhryggist með myndavalið, en þetta er ákveðin sjálfspyntingarhvöt, að horfa á svona klisjur. Ég mæli þá frekar með góðum kaffibolla með vinum og vandamönnum.
    Eða bara að drepa sjálfan sig, það virkar líka alltaf þegar maður er í því skapinu.

    Erfitt val. 🙂

  3. Maður gengur að heiðríkjunni vísri hér – eins og vant er.

  4. Það er augljóst að þú hefur ekki fengið nóg af sjálfspyntingar ferð okkar á laugardaginn, en kanski eru þetta áhrifin af því að borða kæfðan kjúkling, vitað er að eitrunaráhrifin geta varað allt að níu dag þar sem sjúklíngurinn liggur í deleríum og þunglyndi.

  5. Má ég þá heldur mæla með klámi en tilfinninga klámi 😉

Comments are closed.