Hvað þýðir “internasjónal” pabbi? spurði dóttir mín, er við brunuðum á Opel bifreið minni eftir Kleppsveginum. “Alþjóðlegt, eða Alþjóðlegir ” sagði ég með föðurlegri og djúpri viskurödd. “Internasjónal Moðer Fokkers, væri þá – Alþjóðlegt…. Mömmu…. ?” hana setti hljóða, meðan hún reyndi að pússla saman orðunum í höfði sér. Án þess að beinlínis vilja það, heyrði ég sjálfa mig segja hátt og snjallt: “Alþjóðlegir móðurríðarar” og um leið og ég sleppti orðinu óskaði ég sjálfum mér norður í rassaborugat, þar sem orðljótir pabbar eru grillaðir í húminu af gráðugum Sjálfstæðismönnum.
11 thoughts on “Alþjóðlegir móðurríðarar”
Comments are closed.
fín mynd
fine questions Draghina!
tsjaaa… Þetta hljómar eins og minniháttar smán (ef þá nokkur) sem er nú langt í frá – og á nokkurn hátt – sambærileg þeirra gráðugra Sjálfstæðismanna.
Eigum við ekki bara að vona að þetta hafi verið einstakt atvik og láta það gott heita?
Þetta hús er í miklu uppáhaldi hjá mér, ekki síst hin hliðin.
Já þetta er smart, ég tók mig einmitt til og ljósmyndaði kofann í bak og fyrir um daginn.
…hvernig líður Snorra?
Ég þekki engan Snorra, að því gefnu að spurningunni hafi verið beint til mín.
Þú vilt s.s. ekki láta minna þig á Snorra S.
Jú víst, bæjarmelinn þekkirðu…AAArghhh….
Bæjarmelurinn sem keypti inn fyrir strætó? Var hann ekki alltaf að maka sinn krók? Helvítis melurinn!
Já bölvaður melurinn. Og svo var hinn melurinn með Space Wagoninn á gryfjunni. Ég veit varla hvor var meiri melur.