Morkinn af andleysi

Hryllilegt andleysi hefur tekið sér bólfestu í sálu minni. Eina sem mér dettur í hug að skrifa um er dauði og öldrun. Á morgun verður krossfestingu Jesú Krists Jósefssonar fagnað með pompi og prakti. Eða þannig. Einu sinni mátti ekki svo mikið sem prumpa á þessum degi hann var svo hátíðlegur. Ég held að Jesú Kristur hafi bara aldrei verið til, hvað þá að hann hafi verið festur á kross á þessum degi. Sagnfræðingar eru ekki einu sinni vissir um að Ingólfur Arnarsson hafi verið til, og hann á að vera 900 árum nýrri en Jesú.

Ég trúi þessu bara ekki. Í mínum huga eru trúarbrögð einn mesti viðbjóður sem manninum hefur dottið í hug. Allar þessar hugmyndir og ritjúalar, boð og bönn eru fabríkeruð af einhverjum karlaumingjum sem vildu kúga meðbræður sína, sérstaklega ef þeir voru konur. En ótti mannsins er öllu yfirsterkari. Farir þú ekki eftir “lögmálum Guðs” þá ertu dæmdur til að búa í brennandi útgáfu af Breiðholti, þar sem spiluð eru Windows kerfishljóð í gjallarhornum á götu úti allan sólarhringinn.

Ég er ekki þó hluti af hjörð trúleysingja. Ég man ekki til þess að hafa passað inn í neina hjörð af einu né neinu. Ég gæti ekki einu sinni farið út að hlaupa með hlaupahóp. Ef ég mæti hlaupahóp, þá finnst mér hann hallærislegur. Nei, ég gæti aldrei hlaupið í hóp. Ég vil njóta einverunnar. Einveran er aldrei eins tær og falleg og einmitt á hlaupum. Enginn sími með í för. Ekkert áreiti. Að hlaupa og halda uppi samræðum er hræðileg tilhugsun.

Jæja, úr andleysi yfir í Jesú og trúarbrögð, og þaðan yfir í hjarðlifnað og hlaup. Nokkuð gott fyrir mann morkinn af andleysi.

8 thoughts on “Morkinn af andleysi”

  1. Ertu hættur í fjallabræðrum?
    Þeir eru víst að fara í glæsta tónleikaför til Ísafjarðar þess merka staðar, var að vona að þú yrðir með í för

  2. Ég er löngu hættur. Ég komst að því að ég er ekki hressa kórtýpan. Svo leiðist mér að syngja: “Við gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta”.

  3. Eðlilegasta þróun mála, að mínu viti, er þróun frá hjarðlífi yfir í stóðlífi.

  4. “þá ertu dæmdur til að búa í brennandi útgáfu af Breiðholti, þar sem spiluð eru Windows kerfishljóð í gjallarhornum á götu úti allan sólarhringinn.”

    Guð blessi þig góði

  5. Varðandi kerfishljóðin:
    Það er hægt að slökkva á þeim – en þá gefur vélin tölvan frá sér geðvonskulegt rophljóð sem er jafnvel enn meira pirrandi en helv. glinglóin.

    Er ekki hægt að komast fyrir þetta öðruvísi en að fjarlægja harða diskinn?

  6. Það er bara svo mikið þægilegra að fókusera á windows en weltsmertzuna.

Comments are closed.