Eyjan

Ein áhrifaríkasta leiðin til að misþyrma sálu sinni er að lesa athugasemdir á hryllingseyjunni punktur is. Þann illa þefjandi pytt hrasa ég reglulega í og missi þá samstundis trú á samlöndum mínum og getu mannsins til að hefja sig upp úr forinni. Það þarf ekki nema eina til tvær athugasemdir til að ég verði verulega leiður.

Eru Íslendingar svona ægilega leiðinlegir? Er þetta kannski þjóðin?

Það skiptir litlu máli um hvað pistillinn er, alltaf skal einhver skrifa niðurdrepandi athugasemd. Einhvern tímann las ég blogg eftir Egil Helgason um Stephen Hawkins og líf á öðrum hnöttum. Eftir að hafa lesið nokkrar athugasemdir, sumar andskoti áhugaverðar, kom einn sem virðist í fullu starfi sem álitsgjafi hjá eyjunni og var ekki lengi að tengja líf á öðrum hnöttum við ráðandi ríkisstjórn og skjaldborg heimilanna.

Væri ekki gaman að halda partí með fólkinu sem er þarna duglegast? Hittast á Kringlukránni og ræða málin?

Sumir þeirra sem eru mest áberandi í umræðunni, virðast gera lítið annað ef marka má Google.

Nafni minn Sigurður, nema hann er númer eitt og ég ekki, á þarna 4120 niðurstöður á google, sé leitin skilyrt við eyjan.is. Það má reyndar gera ráð fyrir að þarna sé einnig verið að ávarpa hann í öðrum athugasemdum, en samt þó aðeins fjórðungur af þessu séu athugasemdir, má ætla að hann eyði megninu af sínum tíma á þessum vettvangi.

Þeir eru miklu fleiri sem telja mörg þúsund niðurstöður.

Á eyjunni éta líka allir upp eftir hvorum öðrum. Hér er eitt dæmi.

Ég ber engar sérstakar taugar til Samfylkingarinnar. En hversu oft er þessi útúrsnúningur fyndinn eða sniðugur. 2000 sinnum?

Ég ætla að vona fyrir hönd eyjunnar að þeir lagi umræðuvettvang sinn þannig að fólk þurfi að gera betur grein fyrir sér, eða að internetveitur þeirra sem eru hvað leiðinlegastir fari að loka á tengingarnar hjá þeim vegna vangoldinna gjalda.

4 thoughts on “Eyjan”

  1. Ég hef verið bænheyrður, nú verð ég að finna eitthvað annað til að gera mig leiðan.

  2. Ég held að það sé einmitt málið, íslendingar eru hundleiðinlegir. Allavega er frasinn “Fólk er fífl” kominn frá Íslandi. Danir eru allavega skemmtilegri og þá er nú mikið sagt. Það er ljótt að segja þetta en þetta er bara satt.

  3. Af nógu er að taka, það er svo ótalmargt svartnættið, Sigurður minn.

    Spritti: Engir, ég endurtek ENGIR, ekki einu sinni þjóðverjar í norðanverðu Þýskalandi, eru jafn leiðinlegir og Danir.

Comments are closed.