Fjall dagsins að þessu sinni er fjallið Þorfinnur.

Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart.

11 thoughts on “Fjall dagsins að þessu sinni er fjallið Þorfinnur.”

  1. Jæja elsku vinur. Við munum nú báðir hvar okkar rætur liggja. Geturðu gert þetta aðgengilegt á einhvern hátt? Hafðu samband.

  2. hvar er fallega færslan um blaðberadrenginn og Ingibjörgu?

  3. Ég opna aðgengi og hef samband, allt í sömu andrá.

    Fjallið Þorfinnur er við Önundarfjörð, ef ég fer rétt með. Þess ber að geta að karlmannlegi karlakórinn Fjallabræður á ættir sínar að rekja til Önundarfjarðar. Það að ég beri millinafnið Þorfinnur og er meðlimur í karlakórnum, er allt annað en tilviljun, heldur hreinir og klárir galdrar.

    Ég tók út færsluna um blaðberadrenginn og Ingibjörgu, rétt á meðan ég var að skrúbba drulluna sem lesendur þessarar síðu klíndu á hana.

  4. Fjallið Þorfinnur liggur austan við heljakamb syðri, sem er svona ca. 4 mílur vestan við Langatanga þar sem Friðglópur nokkur hafði vetursetu árið 1967. Hann vildi með því mómæla svokölluðum H-degi. En þann dag var tekinn upp hægri umferð á Íslandi.

    Ástæða þessara mótmæla Friðglóps var til kominn vegna þess að hann bjó við einu einstefnugötu bæjarins (bæjarsjóður hafði bara efni á einu skilti á þessum tíma) og þar mátti bara aka til vinstri ef menn vildu keyra inn götu þá er Friðglópur bjó við …

    … og þarna einhverstaðar í þessu öllu saman ólst ég upp – hugsið ykkur!

    … spurning með að fara aftur á Prósakkið?

  5. Gísli Hjálmar. Farðu leið sem liggur út í Húsasmiðju. Keyptu þér fullan innkaupapoka af 50 og 100 ljósa jólaseríur, þær eru hræbillegar. Hringaðu ljósin upp um alla veggi. Yfir rúmið þitt. Í kringum baðherbergisspegilinn. Hvar sem þér dettur í hug. Hýbýli þín verða eins og heill ævintýraheimur. Tilvera þín bjartari. Viðhorf jákvæðari. Og þú þarft ekkert Prósbjakk.

  6. Geri það fröken “B” og það verður það fyrsta sem ég geri í býtið á morgun …

  7. Sæll og heill, flott fjall, og ég á meir að segja mág sem er skírður í höfuð þessa fjall, Þorfinnur Þráinn var drengurinn skírður, og nafngiftin ákveðin á leið til kirkju.

Comments are closed.