Manngerðir í fábrotnu vanþroska samfélagi

Það eru ekki margar manngerðir í fábrotnu samfélagi eins og á Íslandi og lítið rými fyrir frávik. Hér má sjá sömu týpurnar ráfa um göturnar og eru tvær allsráðandi: krútt og hnakkar. Krúttin eru annaðhvort á leiðinni í Listaháskólann, búinn með hann, eða hafa átt inni umsókn sem hefur verið hafnað. Hvað hnakkanna snertir, þá hef ég ekki hugmynd um hvaðan þeir komu, eða hvert þeir eru að fara. Hver er uppruni hnakkamenningarinnar? Hvað gerðist? Eitur í brjóstamjólkinni?

Hvað um það.

Hér eru allir alveg nákvæmlega eins. Spegilmyndin af hvorum öðrum. Til að lifa og þrífast í Reykjavík, verður þú að passa inn í einhvern hóp. Annars kemur þér til með að líða illa. Manngerðir á Íslandi eru kannski aðeins fleiri en tvær, en seint verður sagt að hér þrífist fjölbreytileiki eins og er að finna í stórborgum erlendis. Reykjavík er líka bara smábær, og ekki hægt að stíga út fyrir hússins dyr án þess að rekast á einhvern sem maður vill helst ekki hitta – og á ég þá ekki við að fólk sé fífl og þess vegna sé óskemmtilegt að hitta það. Stundum er bara gott að geta brugðið sér út í Krónu án þess að þurfa að varalita sig og setja sig í einhverjar sósjal stellingar.

Nú ríkir þynnkuástand á Íslandi. Sama hvað stendur í athugasemdakerfi eyjunnar: mér verður ekki um kennt. Ég keypti ekki íbúð á uppsprengdu verði, bíl upp á margar milljónir, þyrlu, flatskjá, eða tók nokkurn þátt í hinni svokölluðu veislu. Ég bjó spart. Keypti druslu sem nú er ónýt. Stofnaði ekki til skulda, en tókst heldur ekki að leggja fyrir, einhverra hluta vegna.

Síðustu misseri hefur þótt fínt að starfa á hlutabréfamarkaði, í bankageiranum, eða einhverri stofnun sem flytur peninga á milli herbergja. Gildi Íslendings var einskis virði ef hann átti ekki stóra íbúð eða hús sem búið var að rusla öllu út og setja nýtt og glæsilegt í staðinn, bíl undir 5 milljónum, hjólhýsi, dýr og flott föt og fyrirtæki sem eins og öll hin fyrirtækin fluttu peninga á milli fyrirtækja. Og ekki var þetta nóg til að gera hann að manni. Hann varð að tileinka sér “zero tolerance” eða “núll umburðarlyndi” gagnvart fólki sem ekki passaði inn í nýju íslensku glansmyndina. Já, allir sem öfluðu sér ekki tekna á peningamarkaðnum, eða urðu uppvísir af hálfkáki, eða stefndu ekki að því að ná hámarksárangri í lífinu, voru aular og áttu ekkert erindi upp á dekk.

Hámarksárangur, hvað svo sem þú tókst þér fyrir hendur. Kúka stærst. Fá kröftugustu fullnæginguna. Fara á flottasta fylleríið. Verða manna kókaðastur. Kókaðri en Fúll á móti, svo ég vitni í Sumarliða, sem ekki er bara fullur heldur líka með nasirnar útroðnar af kókaíni.

Lífið á Íslandi síðustu ár hefur verið eins og þátttaka í raunveruleikaþætti Donald Trumps: The Apprentice, og nú hafa allir nýríku fávitarnir verið sendir heim grenjandi.

Innskot: Vitið þið að til er fullt af fólki, sem bíður gramt eftir að ástandið lagist svo það geti haldið áfram uppteknum hætti.

En ég fengið nóg af þessu þjóðfélagi. Ég hef ekki í hyggju að eyða fleiri dögum hérna. Ég ætla ekki að taka þátt í þynnkunni og bömmernum sem þjakar þjóðarsálina. Ég segi því við ykkur sem voruð sem fyllst meðan á partíinu stóð: Njótið ávaxta erfiðis ykkar. Ég ætla ásamt heitmey minni að stíga um borð í Flugleiðavél og halda út í heim.

19 thoughts on “Manngerðir í fábrotnu vanþroska samfélagi”

  1. You guys will be missed – já og saknað.
    Komiði ykkur nú almennilega fyrir þannig að gestamóttökur verði mögulegar og algengar.

    Góða ferð

  2. Gangi þér sem best í útlandinu. Ég vona að þú hættir samt ekki að blogga, mér finnst alltaf mjög gaman að finna færslur frá þér í rss straumnum.

  3. Bíddu,bíddu,bíddu!

    Heitmey þín???!!!

    Af ættbálki og húsi Davíðs?

  4. Verður þá bloggað hérna í framtíðinni á hádönsku???

  5. Amen! Loksins einhver í snertingu við raunveruleikann…

  6. Farið hefur fé betra. Þú ert ófyndinn og fyrirsjáanlegur penni. Fyrir utan að vita ekki neitt (að eigin sögn).

    PS Þetta er samt allt nokkuð rétt hjá þér, but comedy is all about timing, og því miður, að þá ert þú of seinn.

  7. Ég þakka kveðjurnar. Ég ætla hugsa um það sem Árni skrifaði alla þessa viku.

  8. Árni, okkur þykir agalega vænt um fólk eins og þig, vona að ég eigi eftir að rekast á þig á lífsleiðinni. Fólk eins og þú gerir heiminn að betri stað.
    Siggi ég á eftir að sakna þín svo mikið. Sjáumst í Dk 🙂

  9. Ég verð að viðurkenna að þetta er eitt allra leiðinlegasta komment sem ég hef fengið á þeim 7 árum sem ég hef skrifað á netið og þykir flestum það billega sloppið. Mér varð hálf bilt við. Ég held að einhverju leiti geti ég tekið sökina á mig. Ég hef þó aldrei gefið mig út fyrir að vera góður penni. Mér finnst gaman að skrifa, þó svo að oft eigi ég í bölvuðum erfiðleikum með að klambra saman texta. Mér finnst vanta flæði í skrif mín, og stundum er textinn svo samhengislaus og torskilinn að ekki einu sinni ég átta mig á hvað ég er að reyna að segja. Ég geng ekki með rithöfund í maganum, eða finnst ég eitthvað sérstaklega fyndinn eða gáfaður. Ég er ekki rökviss, og oftast í mótsögn við sjálfan mig. Ef ég væri jafn ritfær, fyndinn og uppátækjasamur og ég ætla að Árni sé, þá myndi ég einnig drulla yfir þá sem eru það ekki. Það er eitthvað svo fallegt við það. Mig grunar þó að Árni sé holdgervingur þess sem ég er að flýja og vona að ég eigi aldrei eftir að hitta hann.

  10. Ég styð landflóttann. Þótt mér þyki trist að það fólk sem virðist vera að flýja skerið sé einmitt uppp til hópa það fólk sem mér þyki kostur að halda í. Vonandi tekur Danmörk þér vel og vonandi finnurðu eitthvað þar til að nöldra yfir hér á blogginu! ;P

    P.s. Ég hef heyrt að Árni þjáist af krónískum líkþornum og er því ekkert viss um að þú eigir að taka þetta tussulega komment hans neitt sérstaklega persónulega.

  11. Ég vona að þú verðir ánægður í Danmörku og verðir mettur af flødeskum og pølser – en samt ekki alveg það ánægður að þú hættir að skrifa “ólundarpistla”, því mér finnst mér þú mjög góður penni og gaman að lesa það sem þú skrifar.
    Hugsaðu frekar um okkur sem njótum þess að lesa hvað þú skrifar heldur en að eyða tímanum í að hugsa um Árna sem greinilega fær útrás við að vera leiðinlegur við fólk, aumingja maðurinn.

  12. Úfff! Stundum ætti maður að hafa möguleikana á að leiðrétta sín eigin komment. Mér hefur greinilega verið mikið niðri fyrir í gær, þá vill íslenskan bögglast svolítið fyrir mér og verður að hálfgerðri dönsku. Meiningin hefur allavega komist til skila.

Comments are closed.