Borgin brennur

[MEDIA=99]

Fyrir nokkrum árum síðan lærði ég á snilldarforritið Photoshop. Það kom sér ákaflega vel á þeim tíma, þar sem mér var í nöp við fjölda fólks; sem er eitthvað annað en í dag: nýkrýndur verndari ástarinnar.

Þeir sem urðu fyrir photoshop-barðinu á mér voru meðal annarra deildarstýra á deild sem ég var að vinna á. Hana staðsetti ég á samnorræna ráðstefnu hjá BDSM félagi Íslands, íklædda hefðbundnu leðri með keðjur áfastar viðkvæmum líkamshlutum. Myndina sem ég bjó til af henni, sýndi ég engum nema stúlku einni sem vann á sömu deild. Við veltumst um af hlátri í súrsætum hefndarhug.

Annar aðili á svipuðum tíma, sjálfkjörinn andlegur leiðtogi Samtaka Iðnaðarins, var að gera mig stjörnu-hoppandi-vitlausan. Ég mátti ekki sjá hann, þá blossaði upp gremja sem var svo fúl og illa lyktandi, að ég átti í mestu erfiðleikum með að leyna henni. Hann sendi ég, með hjálp Photoshop, í gleðskap samkynhneigðra, þar sem ég lét hann horfa á karlkyns fatafellu með sælubros á vör. Sú mynd, mér algerlega að óvörum rataði á netið.

Undanfarinn mánuð hef ég verið að læra á forrit sem heitir Adobe After Effects. Með því get ég blásið líf í einfaldar ljósmyndir og sett fólk í ómanneskjulegar aðstæður. Til allrar guðs lukku á ég ekki til neitt annað nú til dags, en hjartahreinan kærleik.

Það er enginn tilgangur með meðfylgjandi myndbandi. Ég hef enga sérstaka hugmynd um hvers vegna viðkomandi persóna varð fyrir valinu. Mér hefur reyndar alltaf fundist hausinn á vefsíðunni hans frekar spaugileg. Guð einn veit að mér er nokkuð sama um pólitík. Ég þurfti einungis viðfangsefni meðan ég var að læra, og kom ekkert betra til hugar. Afhverju brúðan syngur Hunting High And Low, er líklega vegna þess að rétt fyrir jól, sendi mér einhver tengil á myndband Garðars Cortes þar sem hann syngur þetta lag, og fannst mér það óttalega hallærislegt.

Ég var búinn að búa til brúðu sem spannaði allt lagið, en eftir að hafa tosað hana til og frá í u.þ.b 3000 ramma, var mér orðið frekar illa við hana, svo ég ákvað bara að klippa þessi tvö atriði saman í þetta stutta myndband og pósta því.

Borgin brennur á youtube

15 thoughts on “Borgin brennur”

  1. Fullkomið….
    Þú ert ráðinn í næsta verkefni mitt sem verður einmitt sett upp í ákveðnu listasafni í Kanada sem bíður eftir einhverju nýju og fersku frá klakanum.

  2. Idle hands are the devil’s workshop sagði einhver…en mig langar samt að fá svar við spurningunni: Hvar er téður leiðtogi í dag?

  3. Ég fjarlægði leiðtogann af netinu eftir að hann setti sig í samband við mig og óskaði þess. Ég skammaðist mín niður í rassaborugat.

  4. Vá hvað þetta er krípí og fallegt. Oj hvað hann er með ógeðslegt andlit. En hvað þetta er skemmtilegt. Og ég sé að þú hefur verið vakandi til fimm í morgun 🙂 Þúrt svo hress og duglegur. 🙂

  5. þetta er það sem gerist þegar þessum aðilum er brætt saman.. það hef ég vitað lengi lengi og það er í höndum okkar borgarbúa að sjá til þess að Bingi og Cortes rugli ekki saman reitum..

  6. Þú hefur greinilega það sem til þarf – vegna þess að áhorfandanum finnst atburðarásin svo “eðlileg”.

    Mér þótti þetta allt saman svo rökrétt og það truflaði mig ekkert að ég og mínir væru á meðal þeirr x íbúa sem þarna væri verið að grilla og gróðursetja.

    Þú býrð yfir sannfæringarkrafti – og það er “meidjor assett” eins og þeir segja fyrir vestan.

    P.S. Notaðirðu augun úr Bamba?

  7. Ég plokkaði augun úr Bamba, setti í sjálfan mig ,deplaði þeim flóttalega, tróð þeim svo í brúðudrusluna.

  8. Bravo, vel gert, skemmtilegt og huggulegt svona í skammdeginu að sjá Borg Óttans brenna.

  9. Þetta minnti mig pínulítið á barbíleikina í gamla daga þegar maður leyfði einhverjum strákasna að vera með…
    Drepleiðinlegt þangað til sprengingar og læti settu endapunktinn í ömurlega tilvist leiksins..

  10. “Ekkert er fegurr’en útsprungin Reykjavík…”
    Alveg dásamlegt – Jú didd it agein, Sigurður! 🙂

Comments are closed.