Transcontinental spelt brauð

bread-002.jpg

Feitur á sál og líkama ráfaði ég slefandi um götur borgarinnar muldrandi: “Drepa, drepa, drepa.” Svo lærði ég að baka speltbrauð og líf mitt öðlaðist tilgang. Kílóin hrundu af mér og áður en ég vissi af var ég orðinn glæsilegri en ég hef nokkru sinni áður verið. Það þarf ekki að koma neinum á óvart þegar birtist heilsíðuviðtal við mig í Mannlífi undir fyrirsögninni: “Var afvelta af spiki, en er núna grannur, fallegur og eftirsóttur!”

Ég má ekki út fyrir hússins dyr, án þess að einhver ráðist á mig og heimti uppskriftina af þessu fína brauði, en hér er hún:

5dl – spelt
1dl – sesamfræ
3 tsk – vínsteinslyftiduft
1/2-1 tsk – sjávarsalt
1 1/2-2dl – ab-mjólk
1 1/2-2dl – sjóðandi heitt vatn

Ég hef það fyrir vana að tvöfalda þessa uppskrift, enda þarf ég að metta svanga munna allra persónuleikanna minna.

Fyrst er þurrefnunum blandað saman í skál. Hellið vökvanum útí og blandið varlega saman. Hægt er að setja ýmislegt fleira saman við brauðdeigið eins og sólþurrkaða tómata, ólífur, gulrætur, hvítlauk eða kryddjurtir. Setjið deigið í smurt brauðform og bakið í 25-30 mín við 200C.

Þetta brauð er Guð.

9 thoughts on “Transcontinental spelt brauð”

  1. Ég hata allt gerlaust, sykurlaust og glútenlaust. Ég botna ekkert í þér Sigurður að vera einn af þessum.

  2. Enda átt þú eftir að DEYJA, meðan ég lifi endalaust. Lifa endalaust? Andskotinn…

  3. Talandi um uppskriftir!

    Sá forsíðuna á DV í dag og var dágóða stund að átta mig.

    Forsíðumyndin var af gemsagellunni í borgarstjórnarminnihlutanum – en nú er búið að gera Hönnu Birnu klón úr henni. Að vísu er hún ekki alveg búin að ná munnsvipnum sem einkennir frumeintakið.

    Hvaða spunalækni datt þetta í hug? Og megum við eiga von á Gísla Marteini með akrýlkollu?

    Það er greinilega verið að plotta eitthvað – því þetta flokkast ekki undir fegrunaraðgerð.

Comments are closed.