Ruglingslegt fjas um Þórberg

Meðan ég læt mig dreyma dagdrauma um að sötra molakaffi með Þórbergi Þórðarsyni, spyr ég sjálfan mig hvort mögulega sé einhver núlifandi af sama kaliberi, sem ég gæti hugsað mér að kasta kveðju á. Ég man ekki eftir neinum, sem ég hef lesið, sem skrifað hefur af jafn miklum heiðarleika og Þórbergur. Enginn af mínum samtíðarmönnum hefur gert jafn mikið gys að sínum eigin kjánalega þankagangi og hann. Flestir þeirra sem skrifa, skrifa um bresti í skapgerð annarra, og hafi þeir eitthvað við sjálfan sig að athuga, þá eru það misfellur sem þeir eru fyrir löngu búnir að jafna út. Þeir sem skrifa, og þá á ég ekki einungis við bókmenntir, heldur líka þá sem skrifa pistla á netið, hnýta í hugmyndir annarra og draga upp hallærislega mynd af öðru fólki. Þeim er svo umhugað um virðingu meðbræðra sinna að allar tilraunir til heiðarleika verða tilgerðarlegar.

En eins mikinn hlýhug og ég ber til Þórbergs, er spurning hvort hann hafi verið í raun og veru, eins og hann lýsir sér. Sumir álíta að hann hafi verið allt annað en sannur. Pabbi minn sagði mér sögu af því, þegar skólafélagi hans, mikill kommúnisti, fór þess á leit við Þórberg að hann héldi erindi á fundi hjá Ungliðahreyfingu Kommúnista. Þetta hefur verið í kringum 1950. Ég veit reyndar ekki hvort félagsskapurinn hafi heitið Ungliðahreyfing Kommúnista, en þetta var meðan pabbi var í menntaskóla og hann í kringum tvítugsaldurinn, þannig að Ungliðahreyfing er ekki svo slæm ágiskun. Þórbergur leit með fyrirlitningu á þennan unga mann, sem gerði þau hræðilegu mistök að þúa Þórberg, og sagði: Erum við dús? Menn sem voru góðir með sig, heimtuðu að þeir væru þéraðir. Samt las ég, eða heyrði, að Þórbergur hefði aldrei kunnað við menn sem snobbuðu fyrir honum, og mikið talaði hann niður til þeirra sem voru góðir með sig.

Fyrst þegar ég heyrði þessa sögu, var ég undir sterkum áhrifum frá Sálminum og reyndi vitanlega að bera í bætifláka fyrir Þórberg, þess viss að skólabróðir föður míns hefði skapraunað honum eitthvað áður, en ekki látið það fylgja sögunni. Faðir minn sagði að svo væri ekki. Skólabróðirinn hefði borið upp erindið, fengið þessi viðbrögð og snúið aftur vonsvikinn til félaga sinna í Ungliðahreyfingunni og sagt þeim að þessi maður væri enginn kommúnisti, hann væri bara merkikerti.

Ef það væri einhver í nútímanum sem ég væri sérstaklega hrifinn af, hvort sem um er að ræða bókmenntir, eða aðra listsköpun, þá vildi ég ekki kynnast honum persónulega. Ég vil eiga mína höfunda út af fyrir mig og ekki eyðileggja þá ánægju sem ég hef af verkum þeirra, með að láta persónu þeirra spilla fyrir. Þess vegna er svo gaman að ímynda sér molakaffi með löngu dauðu fólki og þó maður hafi einhverja hugmynd um það að þeir hafi ekki verið það sem þeir sögðust vera, hefur maður engin tæki til að sannreyna það.

12 thoughts on “Ruglingslegt fjas um Þórberg”

  1. Ég held að fáir séu uppi sem eru jafnheiðarlegir og hann gamli góði Bob Dylan. Ég held ég myndi samt hafni tækifæri á að fá að kynnast honum persónulega.

  2. Ég hef verið að hugsa þetta, og ef það er einhver núlifandi Íslendingur sem er jafn mikill snillingur og Þórbergur var, þá er það líklega Megas. Ég sé hann oft á gangi, en ræðst aldrei á hann slefandi, og hef það ekki í hyggju. En talandi um heiðarleikabókmenntir, ég held að næsta bók sem ég lesi verði Harmsaga æfi minnar, eftir Jóhannes Birkiland, mér skilst að þar fórni höfundur sér gersamlega.

  3. Ég er ekki viss um að sálarástand þitt og afstaða til umheimsins sé á þá lund að þú þolir að lesa Birkiland.

    Ég(annálað hörkutól)smáskammtaði mér Harmsöguna og var komin með eitrunareinkenni í miðri bók.

  4. Ég veit alveg hvað þú ert að tala um. Megas bauð mér einu sinni sæti af fyrra bragði við borð á barstofu. Ég sagði varla orð við hann heldur drakk bara bjór og andaði að mér keðjureyk hans þangað til ég þurfti að afsaka mig og æla. Ég sá annars Harmsögu á 10.000 kall í Kolaportinu um daginn. Sjálfur keypti ég hana á 9.000 í fyrra hjá Braga. Ég las fyrsta fjórðunginn og fann að það vantaði herslumun. Ég fer alveg að verða tilbúinn fyrir aðra tilraun…

    En mér fannst ég ekki eiga bókasafn fyrr en ég átti Birkiland.

  5. Nei, það er feitletrað og undirstrikað í reglugerðum. Þannig er það bara Pétur, og þú verður að taka því eins og hverju öðru náttúrulögmáli.

  6. Einu sinni bauðst mér að fara í kaffi með uppáhalds skáldinu mínu. Hann hét Ivor Cutler og var þegar orðin gamall maður. Ég afþakkaði á nvkl þessum forsendum. Vildi að goðið mitt fengi að vera goð en ekki maður. Menn eru svoddan ógeð.

  7. ég keypti mér fyrir nokkrum árum dont look now sem var ein helzta ástæðan fyrir martröðum mínum undanfarna áratugi. Eyðilagði allt með því að horfa á hana. Hryllingurinn í henni er barn síns tíma og ég missti frábæra æskuminningu í niðurfallið. Sumt á maður ekki að snerta

  8. Ég held að þessi saga sé miklu frekar dæmi um einhverfurófsröskun Þórbergs en snobb hans.

Comments are closed.